Lagersala skilmálar

Það er einfalt og þægilegt að versla hjá okkur. Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Sportmenn ehf.. Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin endurgreiðsla. Sportmenn ehf. áskilur sér rétt til að afgreiða ekki pantanir, t.d. ef vara er vitlaust verðmerkt eða uppseld, og til að breyta verðum og vöruframboði. Viðskiptavinur fær þá endurgreitt.

 

ATH ef þú hefur ekki fengið staðfestingarpóst eftir að hafa “klárað kaup” þá máttu endilega senda okkur póst á lagersala@adidas.is

Skildi það gerast að versluð er vara sem er svo ekki til á lager þá færðu póst um það og endurgreiðslu (ekki er hægt að skipta um stærð).

Einnig er ekki hægt að hafa samband varðandi að breyta eða bæta í pantanir.

 

UPPLÝSINGAR UM SELJANDA

Seljandi er Sportmenn ehf. Kennitala 560891-1219 Vsk nr. 30426, til húsa að Faxafeni 7, 108 Reykjavík.

 

VERÐ

Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti (VSK) og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Verð í netverslun getur breyst án fyrirvara t.d. vegna rangra verðupplýsinga, útsölu eða rangrar skráningar samanber ákvæði þess efnis hér að framan. 

 

GREIÐSLUMÖGULEIKAR

Við notumst við örugga greiðslusíðu frá Borgun. Hægt er að greiða með öllum helstu greiðslukortum og debetkrotum 
 

SKILAFRESTUR
Ekki er ætlast til þess að Lagersölu vörum sé skipt né skilað.

Neytendur hafa þó rétt á því innan 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Niðurtalning hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Varan er endurgreidd að fullu innan 30 daga eftir að henni er skilað ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt.

Þú getur annaðhvort sent okkur með póstinum á þinn kostnað eða komið henni til okkar í Faxafen 7. Skilur eftir í hjólabúðinni GÁP.
Varan þarf að berast okkur í upprunalegu ástandi ásamt rekjanlegum upplýsingum um pöntunina

Áður en skil eiga sér stað þarftu að fara inn á pöntunina inn á þínu svæði og smella á “Skila vöru” til þess að skrá vöruskilabeiðni. 
Ekki verður tekið við beiðnum um vöruskil með neinum öðrum hætti.

TRÚNAÐUR

Seljandi heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem þeir gefa upp í tengslum við viðskiptin. Sjá nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hér.

 

LAGAÁKVÆÐI

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 sem og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við getur átt . Niðurtalning á öllum frestum sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefst þegar móttaka vöru á sér stað.

 

HÖFUNDARRÉTTUR

Allt efni á www.lagersala.adidas.is texti, grafík, lógó og myndir, eru eign Adidas Global, Reebok Global og Sportmenn ehf.

 

VARNARÞING

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Skilmálar þessir gilda frá 20. maí 2011.

Netverslun áskilur sér réttindi til að ógilda pantanir þar sem innskráningarbónus eða Sportpunktar eru misnotaðir.

 

Nánari upplýsingar

Ef þú þarft nánari upplýsingar, sendu okkur þá fyrirspurn á lagersala@adidas.is og við svörum þér eins fljótt og auðið er.